Myndbönd yfir á DVD
|
Vandamál varðandi myndbönd Myndbönd eyðast með tímanum og í hvert sinn sem horft er á þau. Þau geta farið að skemmast eftir aðeins 10 ár! Það þýðir að myndirnar sem við tókum af börnunum okkar fara að láta á sjá þegar þau eru að byrja í framhaldsskóla! Ekki aðeins myndin heldur einnig hljóðið gefur sig með tímanum. Stundum hverfur hljóðið alveg. Myndbandstæki eru ekki lengur fáanleg og erfitt er að fá varahluti í myndbandstæki. Því er um að gera að safna saman myndbandsspólunum og láta yfirfæra þær hjá okkur sem fyrst.
|
Munurinn á DVD diskum og VHS spólum |
Kostir DVD
- DVD dofnar ekki með tímanum né í hvert sinn sem horft er á diskinn.
- Fljótlegt er að finna efnið á diskinum.
- Þú getur horft á diskinn bæði í sjónvarpi og tölvu.
- Hægt er að koma 2 tímum á disk.
Engin sýnileg myndgæði tapast við yfirfærsluna.
Tegundir af spólum sem við yfirfærum:
![]()
Við tökum við flestum gerðum að spólum: VHS, Super VHS, VHS-C, Video8 (8mm video), Hi-8, Digital 8, MiniDV og HDV hvort sem þær eru af gerðinni PAL (Evrópu) eða NTSC (Ameríku). Við getum einnig tekið Betamax og Betacam SP spólur sem eru í PAL.
Yfir á flakkara
Við færum einnig myndbönd á flakkara. Hægt er að velja um yfirfærslu sem er 2GB eða 13GB (óþjappað) á klukkutímann. Það er mun auðveldara að klippa efni ef það er strax sett á flakkara. Hægt er að kaupa flakkara hjá okkur á mjög góðu verði eða koma með eigin flakkara.
Ertu úti á landi?
Ef viðskiptavinir búa úti á landi og eiga ekki hægt með að komast með gögnin til okkar í afgreiðsluna geta þeir sent þau með pósti. Áður en það er gert þarf að fylla út eyðublaðið hér á heimasíðunni með lýsingu á því sem við eigum að gera. Farðu í valröndina efst á síðunni þar sem stendur 'Pöntunareyðublöð.' Þú getur líka hringt til okkar í síma 5174511 og útskýrt málið eða sent okkur tölvupóst: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Móttaka á Akureyri
Á Akureyri tekur Tölvufix, Tryggvabraut 22, við pöntunum og sér um að senda gögnin til okkar. Við hjá Gagnvirkni vinnum verkið og sendum aftur til Tölvufix. Þeir hafa síðan samband við þig. Þú sækir verkið og gögnin til þeirra.
Sækjum og sendum
Fyrir viðskiptavini okkar á höfuðborgarsvæðinu bjóðum við upp á fría heimsendingarþjónustu ef um mikið magn er að ræða. Safnaðu efni sem þú átt í kassa. Við sækjum kassann til þín og yfirfærum efnið á DVD, geisladisk eða flakkara. Skilum þér síðan verkinu og gögnunum. Ekki er tekið aukalega fyrir þessa þjónustu. Lágmark 7 myndbandsspólur eða 10 kvikmyndafilmur, 200 ljósmyndir eða 200 skyggnur, 7 snældur eða 7 hljómplötur, 15 disklinga eða 15 minniskort. Það má blanda þessu saman. Hér koma nokkur slík dæmi. Þú færð fría heimsendingarþjónustu ef þú lætur okkur hafa 5 myndbandsspólur og 5 filmur, eða 100 ljósmyndir og 5 snældur, eða 10 disklinga og 3 hljómplötur. Ef um fatlaðan einstakling er að ræða lækkar lágmarkið um helming.


