Úrval af tölvubúnaði, geisladiskum og skyldum vörum
Útvegum vörurnar innan sólarhrings
Við liggjum ekki með vörur á lager, en getum yfirleitt útvegað þær innan sólarhrings. Ef varan er ekki til hjá okkar byrgjum getur biðin orðið vika eða lengri. Þú hefur samband við okkur og biður um vöruna. Við leggjum þá inn pöntun hjá okkar byrgjum. Þegar varan kemur í hús til okkar látum við þig vita. Þú greiðir fyrir vöruna þegar þú sækir hana til okkar.
Finnurðu ekki það sem þú leitar að?
Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband við okkar byrgja til að athuga hvort við getum útvegað þér vöruna á góðu verði. Bætum stöðugt við nýjum vörum.
Sendum í póstkröfu um allt land
Pökkun og ferð með vöruna á pósthús er ókeypis.
Hröð afgreiðsla. Sendum vöruna í síðasta lagi innan 3ja virkra daga.
Ábyrgð Gagnvirkni er söluaðili fyrir Tölvutek. Þar af leiðandi ábyrgist Tölvutek allar þær vörur sem við seljum fyrir það fyrirtæki. 1 árs ábyrgð er á öllum tækjum, en engin á rekstrarvöru. 2ja ára ábyrgð á vinnsluminnum, skjákortum, móðurborðum og Packard Bell fartölvum til einstaklinga, 1 ár til fyrirtækja. Kaupnóta er ábyrgðarskírteini og skal því geyma. Fara skal með bilaðan búnað sem er í ábyrgð á verkstæði Tölvutek, sem gengst í ábyrgð fyrir allar þær vörur sem við seljum fyrir þá.




